Íslensk-dönsk orðabók

Hér er birtur fyrri hluti Íslensk-danskrar, dansk-íslenskrar vasaorðabókar.

Við gerð vasaorðabókarinnar hefur verið vandað til verks og þess gætt að bókin standist þær kröfur sem gera má til góðra orðabóka. Notendur geta gengið að því sem vísu að finna nauðsynlegar málfræðiupplýsingar þar sem við á, eins og um orðflokk og beygingu danskra orða, góðar merkingarskýringar og notkunardæmi. Framsetning bókarinnar er skýr og aðgengileg, hún er þægileg að stærð og til hægðarauka má í miðju bókarinnar finna lista með sterkum dönskum sögnum og töluorðum.

Ný íslensk-dönsk orðabók hefur ekki komið út í áratugi og því er mikill fengur að bókinni.Gerð fyrri hluta bókarinnar tók mið af almennu íslensku nútímamáli, jafnt talmáli sem ritmáli. Orðaforði síðari hluta bókarinnar var sniðinn eftir nýjum og uppfærðum orðagrunni frá Gyldendal í Danmörku, en uppbygging er miðuð við nýendurskoðaða Dansk-íslenska skólaorðabók sem kom út hjá Eddu fyrr á þessu ári. Í bókinni er að finna um 37.000 uppflettiorð og rúmlega 12.000 dæmi um málnotkun.

Hér er á ferðinni handhæg orðabók, hvort sem er við nám, ferðalög eða dagleg störf.

Vefbók þessa má eigi afrita með neinum hætti, svo sem með rafrænum hætti, ljósmyndun, prentun, hljóðritun eða á annan sambærilegan hátt, að hluta eða í heild, án skriflegs leyfis höfunda og útgefanda.

Formáli

Við smíð þessarar vasaorðabókar hefur verið vandað til verks og þess gætt að bókin standist þær kröfur sem gera má til góðra orðabóka - þó bókin sé smá í sniðum. Notendur geta gengið að nauðsynlegum málfræðilegum upplýsingum, góðum merkingarskýringum og notkunardæmum á aðgengilegan og einfaldan hátt.

Gerð fyrri hluta bókarinnar tók mið af íslensku nútímamáli, jafnt talmáli sem ritmáli, en sérstaklega var safnað orðum tengdum ferðamennsku. Ný íslensk-dönsk orðabók hefur ekki komið út í áratugi og er því mikill fengur að nýsmíð sem þessari. Orðaforði síðari hluta bókarinnar var sniðinn eftir nýjum orðagrunni frá Gyldendal í Danmörku, en uppbygging flettna er miðuð við nýendurskoðaða Dansk-íslenska skólaorðabók frá Eddu (2005).

Vasaorðabók þessi er notendum sínum handhægt uppflettirit, hvort sem menn ferðast um Danmörku, stunda skólanám eða nota tungumálin við dagleg störf.

Reykjavík, júní 2005
Orðabókaritstjórn Eddu

Íslensk-dönsk orðabók
Íslensk-dönsk orðabók
Formáli