Samtíðarmenn
Samtíðarmenn hefur að geyma æviágrip 1700 Íslendinga sem verið hafa áberandi í samfélaginu og vakið hafa athygli fyrir störf sín á undanförnum árum. Í bókinni er fjallað um fólk á öllum aldri; athafnafólk, forystumenn félaga og samtaka, fjölmiðlafólk, fræðimenn, lækna, lögfræðinga, verkalýðsforingja, stjórnmálamenn og listafólk, svo nokkuð sé nefnt. Hér er á ferðinni nauðsynlegt uppflettirit fyrir alla þá sem vilja fræðast og vita deili á kunnum Íslendingum, af ólíkum sviðum þjóðlífsins.
Gerð er grein fyrir fjölskyldu, menntun og starfsferli og birtar myndir af öllum þátttakendum. Yfir 30.000 mannanöfn og fæðingardaga er að finna í bókinni, getið er um foreldra, systkin, maka, foreldra maka, börn, fósturbörn og fyrri maka. Samtals er ritið rúmlega 900 blaðsíður.
Vefbók þessa má eigi afrita með neinum hætti, svo sem með rafrænum hætti, ljósmyndun, prentun, hljóðritun eða á annan
sambærilegan hátt, að hluta eða í heild, án skriflegs leyfis höfunda og útgefanda.
Formáli
Bókin Samtíðarmenn er ný og rækilega endurskoðuð útgáfa sama uppflettirits sem kom út hjá Vöku-Helgafelli árið 1993. Sú bók markaði að mörgu leyti þáttaskil í útgáfu slíkra verka hér á landi, þar sem hún var mun veglegri og ítarlegri en eldri rit af svipuðum toga. Auk þess var það nýmæli að birta myndir af öllum þátttakendum. Mestum tíðindum sætti sú leið sem farin var við val á fólki í bókina. Ákveðið var að miða við það eitt að viðkomandi væri áberandi í íslensku þjóðlífi. Bókin er nú fyrir alllöngu uppseld, en hefur reynst mörgum gagnleg, um það vitna jákvæðar raddir lesenda. Um árabil var þess mjög farið á leit við forlagið að uppfæra Samtíðarmenn en það var ekki fyrr en um mitt ár 2000 sem ákveðið var að ráðst í það verkefni.
Við útgáfu verks af þessu tagi er að ýmsu að hyggja. Hvaða mynd á það að sýna af kynnum Íslendingum og hversu vítt svið á ritið að spanna? Á þeim tíu árum sem líða á milli fyrri Samtíðarmanna og þeirra sem hér eru komnir á þrykk, er ljóst að margs konar breytingar hafa orðið á íslensku samfélagi. Nýtt fólk hefur kvatt sér hljóðs, aðrir horfið af sjónarsviðinu eða dregið sig út úr kastljósinu. Sem fyrr er það markmið Samtíðarmanna að greina frá fólki á ýmsum aldri sem vakið hefur athygli fyrir störf sín á ýmsum sviðum þjóðfélagsins, á undanförnum misserum og árum. Fólki sem veitir forstöðu umsvifamiklum fyrirtækjum eða stofnunum, fólki sem þekkt er fyrir list sína eða afrek og á þar að baki nokkurn feril, fólki sem látið hefur af störfum en er enn virkt í samfélaginu, fólki sem er í fararbroddi í nýjum og vaxandi atvinnugreinum, fólki sem gegnir lykilembættum víða um land o.s.frv.
Þegar lagt var mat á það hvernig efna ætti til nýrrar útgáfu þótti rökréttast að byggja hana á fyrri bókinni, en endurskoða hana þó rækilega. Nýtt verk var það sem stefnt var að og þar með kæmi til nýtt val. Hafist var handa fyrri hluta árs 2001, að safna nöfnum sem erindi ættu í nýja Samtíðarmenn. Formleg ritnefnd var ekki stofnuð að þessu sinni, en verkið varð samvinnuverkefni margra á ritstjórn Vöku-Helgafells. Víða var leitað fanga, ekki síst hjá persónufróðum Íslendingum, og reynt að ná til fólks á ýmsum sviðum. (Vert er að geta þess að með tilkomu Netsins verður slík upplýsingaöflun ólíkt auðveldari en áður var.) Enn fremur hefur nýju fólki verið bætt við meðan á vinnslu bókarinnar stóð.
Vinnslutími Samtíðarmanna hefur orðið alllangur, eins og gefur að skilja, eða rúmlega eitt og hálft ár. Það er vitað mál, og það þekkja allir sem staðið hafa að útgáfu yfirlitsrita af þessu tagi, að persónuupplýsingar eru lengi að skila sér og verða að bókartexta. Rétt er að undirstrika að af þeim 1200 „nýju“ samtíðarmönnum, sem send voru bréf með boði um þátttöku, voru fjölmargir sem skiluðu ekki inn upplýsingum. Til þess að auðvelda þátttakendum svörun var opnuð sérstök skráningarsíða á vef Eddu - útgáfu, þar sem nýjum samtíðarmönnum gafst kostur á að senda inn upplýsingar á rafrænan hátt. Urðu fjölmargir til þess að nýta sér þessa skráningarleið. Sú regla var viðhöfð að birta ekki óbreyttan texta um samtíðarmenn úr fyrri útgáfu, enda viðbúið að hann sé löngu úreltur. Þeir sem voru með í fyrri bókinni, og birtast aftur hér, eru því aðeins þeir sem endurnýjuðu upplýsingar um sig. Endanlegur fjöldi varð 1700 manns, sem er nokkru færra en 1993, en um leið er valið markvissara en í fyrri bók.
Þegar Samtíðarmannabókinni er flett og kannað hverja þar er að finna og hverja ekki er rétt að hafa eftirfarandi í huga: Þegar valinn er stór hópur núlifandi Íslendinga, með það að markmiði að fjalla um áberandi fólk í upphafi nýrrar aldar, er algildur mælikvarði ekki til. Því má búast við því að lesendur sakni einhvers sem þeir hefðu átt von á að finna umfjöllun um í bókinni. Ástæður þess geta verið tvenns konar - annars vegar að láðst hafi að taka viðkomandi með í hópinn; hins vegar að hann hafi afþakkað að vera með eða ekki útvegað umbeðnar upplýsingar. Sú meginregla var höfð við vinnslu bókarinnar að byggja á upplýsingum sem fólk sendi inn sjálft en í nokkrum tilvikum var þeirra aflað úr öðrum heimildum.
Á löngum vinnslutíma Samtíðarmanna hafa eins og við er að búast orðið ýmsar breytingar á fjölskylduhögum og störfum þeirra sem hér er fjallað um. Reynt hefur verið eftir föngum að fylgjast með slíku og leita nýrra upplýsinga eftir frumvinnslu texta. Umfang bókarinnar og það að vinnslu hennar lauk í áföngum varð þess valdandi að erfiðara varð um vik að gera breytingar eftir því sem nær dró lokafrágangi verksins. Af þeim sökum eru upplýsingarnar um samtíðarmennina misjafnlega nýjar. Eins er á það að líta að bókin Samtíðarmenn er ekki ættfræðirit heldur uppflettibók. Í fyrra tilvikinu er samræmi lykilatriði en í hinu síðara skiptir meira máli að hafa textann aðgengilegan. Því kann sums staðar að gæta einhvers misræmis í upplýsingum um þátttakendur í bókinni.
Að lokum er rétt að færa þakkir öllum þeim sem lagt hafa hönd á plóginn í vinnslu þessa rits. Enn fremur eru þátttakendum sjálfum færðar sérstakar þakkir fyrir ánægjulega samvinnu. Það er von okkar að efni bókarinnar verði sem flestum Íslendingum til fróðleiks og ánægju.
Pétur Ástvaldsson ristjóri
Pétur Már Ólafsson útgáfustjóri